Tíminn sem við snertum
About this episode
Af hverju er tíminn svona mikið ólíkíndatól og af hverju eigum við svona erfitt með að átta okkur á honum? Er það vegna þess að hann er eitt af þessum hugtökum sem eru svo umfangsmikil að heilinn okkar skynjar ekki stærðina? Eða er það vegna þess að upplifun okkar á tímanum er sífellt að breytast eftir aldri og aðstæðum? Í fyrsta þætti seríunnar Orðin sem við skiljum ekki beinir Þorvaldur S. Helgason sjónum að tímanum með því að skoða samspil jarðsögulegs og mannsögulegs tíma. Viðmælendur þáttarins eru Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari, og Andri Snær Magnason, rithöfundur. Lesari: Jóhannes Ólafsson. Umsjón: Þorvaldur S. Helgason Tónlist: Högni Egilsson. Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason.
More from Orðin sem við skiljum ekki
Með tilkomu kórónuveirunnar fyrir rúmu ári breyttust allir okkar lífshættir til muna; tilefnislausar utanlandsferðir heyra nú sögunni til, hagvöxtur er ekki lengur eini mælikvarðinn á velsæld þjóða og…
Höf og vötn þekja rúm 71 prósent alls lands hér á jörðu en þrátt fyrir að hafið sé bæði djúpt og dularfullt þá er ekki þar með sagt að það sé utan áhrifasvæðis mannsins. Sú hnattræna hlýnun sem mannky…
Mannkynið hefur raskað um 97 prósentum af upprunalegum vistkerfum jarðarinnar. Þetta hefur valdið því að stórir hópar dýra- og plöntutegunda hafa misst búsvæði sín og kjörlendi og neyðst til að flytja…
Jafnvel þó svo að vísindin hafi tekið við af trúarbrögðum sem ráðandi afl í vestrænni menningu þá er grundvöllurinn í mannlegri tilveru ennþá markaður af goðsögulegri hugsun. Hreyfingar himintunglanna…