Að kveðja hvítan risa
About this episode
Höf og vötn þekja rúm 71 prósent alls lands hér á jörðu en þrátt fyrir að hafið sé bæði djúpt og dularfullt þá er ekki þar með sagt að það sé utan áhrifasvæðis mannsins. Sú hnattræna hlýnun sem mannkynið hefur orsakað með bruna kolefnaeldsneytis er að valda grundvallarbreytingu á eðli vatns á jörðinni. Bráðnun jökla hefur tvöfaldast á síðustu tuttugu árum, golfstraumurinn er veikari en hann hefur verið í þúsund ár og sýrustig hafsins er að breytast meira en sést hefur í 50 milljón ár. Í fimmta þættii þáttaraðarinnar sem byggð er á bók Andra Snæs Magnasonar Um tímann og vatnið, fjallar Þorvaldur S. Helgason um þau áhrif sem loftslagsbreytingar eru að valda á hafi og jöklum. Viðmælendur þáttarins eru Hrönn Egilsdóttir, sjávarvistfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, og Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, prófessor í jöklafræði við Háskóla Íslands. Umsjón: Þorvaldur S. Helgason. Tónlist: Högni Egilsson. Upplestur: Katrín Ásmundsdóttir. Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason.
More from Orðin sem við skiljum ekki
Með tilkomu kórónuveirunnar fyrir rúmu ári breyttust allir okkar lífshættir til muna; tilefnislausar utanlandsferðir heyra nú sögunni til, hagvöxtur er ekki lengur eini mælikvarðinn á velsæld þjóða og…
Mannkynið hefur raskað um 97 prósentum af upprunalegum vistkerfum jarðarinnar. Þetta hefur valdið því að stórir hópar dýra- og plöntutegunda hafa misst búsvæði sín og kjörlendi og neyðst til að flytja…
Jafnvel þó svo að vísindin hafi tekið við af trúarbrögðum sem ráðandi afl í vestrænni menningu þá er grundvöllurinn í mannlegri tilveru ennþá markaður af goðsögulegri hugsun. Hreyfingar himintunglanna…
Af hverju er tíminn svona mikið ólíkíndatól og af hverju eigum við svona erfitt með að átta okkur á honum? Er það vegna þess að hann er eitt af þessum hugtökum sem eru svo umfangsmikil að heilinn okka…