
Episode 22 · Season 1
#0022 Flosi Þorgeirsson
About this episode
S01E22
– Flosi Þorgeirsson er vinur minn. Hann er gítarleikari í hljómsveitinni HAM, sagnfræðingur að mennt, faðir, leiðsögumaður, rokkstjarna og annar af stjórnendum hlaðvarpsþáttar sem kallast Draugar fortíðar sem Hljóðkirkjan framleiðir. Hann hefur lifað allskonar tíma og ekki alltaf góða. Faðir hans lést af slysförum þegar Flosi var 8 ára gamall sem markaði líf hans allt. Hann berst daglega við kvíða og þynglyndi en heldur því í skefjum með skynsemi og aðferðum sem hann hefur lært á lífsleiðinni. Hann er framúrskarandi greindur og vel gefinn, skemmtilegur með afbrigðum, opinn og æðrulaus.
Gott spjall.
– Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Kokkaflakk á þriðjudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum og Besta platan á föstudögum.
More from Snæbjörn talar við fólk
S01E100 – Magnús Blöndahl er sálfræðingurinn minn. Hann hefur fylgt þættinum í anda í meira en ár og það var í gegnum hlustanda þáttarins sem ég fékk ábendingu um að senda honum línu og panta tíma. Þa…
S01E99 – Laddi. Það þarf auðvitað ekkert að hafa fleiri orð um það. Laddi er tónlistarmaður, leikari, grínisti og algert náttúrubarn. Hann hefur haft ofan af fyrir þjóðinni lengur en flestir gera sér…
S01E98 – Jens Ólafsson er betur þekktur sem Jenni í Brain Police. Hann er að öðrum ólöstuðum einn allra öflugasti rokksöngvari Íslandssögunnar. Hann er ógurlegur. Bæði hefur hann þennan rosalega barka…
S01E97 – Katrín Jakobsdóttir er forsætisráðherra Íslands. Hún er ótrúlega látlaus og skrumlaus miðað við þungavigt embættisins og fas margra sem gætt hafa þess áður. Katrín er glæpasagnanörd og fjölsk…
S01E96 – Rakel Björk er leikkona og söngkona. Hún ætlaði sér aldrei að verða neitt annað, sá ekki fyrir sér að Verzló myndi fara vel með hana en hins vegar varð MR henni mjög eðlilegt ferli, og þá spi…