# Eftirtíðalok

> Episode of [Það sem breytingaskeiðið kenndi mér](https://podistic.com/podcast/bao-sem-breytingaskeioio-kenndi-mer.md) · Published November 21, 2020 · Duration 43:23 · Episode 3, season 1

- **Listen on Podistic:** https://podistic.com/episode/eftirtioalok
- **Audio:** https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5346108D1.mp3 (audio/mpeg)

## About this episode

Í þessum síðasta þætti verður fjallað um þriðja undirtímabil breytingaskeiðsins, eftirtíðalokin (e. postmenopause). Rætt verður um þetta tímabil út frá mannfræðilegu sjónarhorni, og skoðaðar verða þær breytingar sem verða á stöðu og upplifun kvenna þegar þær komast á eftirtíðalokaskeiðið. Skoðaðar verða leiðir til að takast á við einkenni með óhefðbundnum lækningum, auk þess sem sjónum verður beint að mikilvægi réttrar næringar fyrir konur á breytingaskeiðinu.
Viðmælendur þáttarins eru Arndís Bergsdóttir, doktor í safnafræði, Birna Ásbjörnsdóttir, næringarfræðingur, Dagmar Eiríksdóttir, nálastungulæknir, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, mannfræðingur, Jóhann Heiðar Jóhannsson, formaður Orðanefndar læknafélaganna,  Sara Stef. Hildardóttir, upplýsingafræðingur, og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor í mannfræði. 

Umsjón: Ólöf Gerður Sigfúsdóttir.
Aðstoð við þáttagerð: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
