# Ari Ólafsson tónlistarmaður

> Episode of [Segðu mér](https://podistic.com/podcast/segou-mer.md) · Published September 1, 2021 · Duration 40:00 · Episode 81, season 1

- **Listen on Podistic:** https://podistic.com/episode/ari-olafsson-tonlistarmaour
- **Audio:** https://ruv-radio.akamaized.net/opid/5133561D0.mp3 (audio/mpeg)

## About this episode

Ari Ólafsson söngvari þekkir eitraða karlmennsku í fótbolta af eigin raun. Hann æfði með KR þegar hann var yngri en þótt ekki passa í hópinn, var kallaður ?gay? og hommi og lagður í einelti í grunnskóla. Í dag lærir hann við virtan söngskóla í London, hefur leikið á sviði og farið í Eurovision. Hann hefur verið beðinn fyrirgefningar og mætir að eigin sögn gerendum sínum af virðingu og skilningi.
Það muna flestir eftir söngvaranum Ara Ólafssyni sem tók þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018 með laginu Our Choice aðeins átján ára gamall. Ekki síst vakti athygli hve brosmildur Ari er en mörgum eru líka minnisstæð tár hans, þegar hann grét á úrslitakvöldinu eftir flutning sinn. Hann kveðst alltaf hafa tamið sér að sjá jákvæðar hliðar lífsins. ?Ég held ég hafi alltaf verið þannig. Hafi haldið í brosið og jákvæðu hliðarnar. Ég byrja daginn á að brosa. Ég brosi stundum á óviðeigandi stöðum þegar maður á að vera leiður,? segir Ari sem var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1.
