# Samtal um framtíðina

> Episode of [Orðin sem við skiljum ekki](https://podistic.com/podcast/oroin-sem-vio-skiljum-ekki.md) · Published May 15, 2021

- **Listen on Podistic:** https://podistic.com/episode/13064--samtal-um-framtioina
- **Audio:** https://ruv-podcast.akamaized.net/5158256D0.mp3 (audio/mpeg)

## About this episode

Með tilkomu kórónuveirunnar fyrir rúmu ári breyttust allir okkar lífshættir til muna; tilefnislausar utanlandsferðir heyra nú sögunni til, hagvöxtur er ekki lengur eini mælikvarðinn á velsæld þjóða og í fyrsta sinn í áraraðir hafa heilsufarsleg sjónarmið verið tekin fram yfir efnahagsleg. Nú þegar sigið er á seinni hlutann í þessu langhlaupi vaknar spurningin, hvað tekur við að því loknu? Ætlum við að fara aftur í sama gamla farið eða ætlum við að nýta reynsluna sem við höfum öðlast til að skapa nýjan heim? Í sjötta og síðasta þætti seríunnar Orðin sem við skiljum ekki, byggð á bók Andra Snæs Magnasonar Um tímann og vatnið, fjallar Þorvaldur S. Helgason um hvernig nýta má reynsluna af heimsfaraldri Covid-19 til að takast á við yfirvofandi heimsfaraldur loftslagsbreytinga. Viðmælendur þáttarins eru Andri Snær Magnason, rithöfundur, og Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, aðgerðasinni. Umsjón: Þorvaldur S. Helgason. Tónlist: Högni Egilsson. Upplestur: Mars Proppé. Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason.
